Bergþóra kom og sótti mig.. og þegar við hún var að fara af stað þá sagði hún "shitt, shitt, shitt... " og ég hvað? "æj.. hélt að bílinn væri fastur" haha.. þá fór ég að hlæja því það var s.s slabb á veginum og bílinn spólaði aðeins.. best fannst mér þegar ég las frétt á vísi áðan þar sem sagt var m.a "færðin í Reykjavík verið afar slæm í dag"haha!! jú okey það er búið að snjóa kreisí í dag en færðin er samt ekki afar slæm! það eru engir skaflar e-ð!
Ég og Bergþóra Gylfa fórum í laugardalslaugina í gær.. og hún fór inn laugarmegin og ég fór inn sundmegin.. s.s ekki samferða ofan í laugina.. við vorum búin að tala um að hittast í steina pottinum..
Þegar ég kem þá sé ég að Bergþóra er komin.. og ég sest alveg hliðin á henni þar sem það er svolítið mikið af fólki í pottinum og ekki mikið um pláss og segji "Jæja.. góða kvöldið!" sagði það aðeins of hátt og leit eiginlega hálf vandræðalega í kringum mig því fólkið leit á mig í þessum látum.. ætlaði svo að fara segja Bergþóru sögu og þegar ég leit á hana þá var þetta bara ekkert Bergþóra?!
ég vissi ekkert hvað ég átti að segja.. þetta var svo mega vandræðalegt! (minnti svolítið á atriði úr Friends þar sem Ross reyndi að kyssa frænku sína og gat svo ekkert sagt.. "just say something!") það leið örugglega 15-20 sek áður en ég gat sagt e-ð.. ég var bara ööö... ööö... og svo kom "ubbs, smá manna vilt!" og svo varð ég bara að sitja áfram hliðin á henni því að það var ekkert annað pláss!
Eitt gott gullkorn í dag frá bekkjafélaga var " já okey, erum við bara svona geðveikt mikið í Hafnafirði" haha.. !
Ég og Nína áttum líka gott samtal í vikunni, við vorum að hvernig við færum til og frá rvk um helgina..
Ég: "UFA liðið ætlar að fara á kálf og fær kannski far með þeim"
Nína: "ha? kálf?"
Ég: "já.. svona litla rútu"
Nína:"já, okey, ekki muuu"
Ég: "ha? mu?"
Nína: "já, rútu en ekki veist muuuuu"
Ég:"ha?"
Nína: "s.s ekki dýrið mu"
Ég:" ha? nei, förum á rútu.."
þetta er típist samtal milli okkar það sem við misskiljum allt sem hægt er að misskilja þegar við tölum saman!
Fór í þrjár geggaðar vísindaferðir í dag.. heimsótti Actavis, Össur og Artic truks!
reyndar búin að fá skammtinn af sóma veitingum fyrir næsta árið.. þar sem þar voru sömu veitingar allstaðar!
31 dagur til jóla
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hahah, ég gleymi aldrei augnarráðinu sem þú gafst mér þegar ég var á leiðinni ofan í laugina... hahah, þetta var of gott!
Bergþóra, 6.2.2011 kl. 22:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.