Okey, ég er ekki að nenna 1 % að vera hérna heima og gera ekki neitt.. ekkert annað en missa af í skólanum og leiðast! Ég var að byrja að vera lasin um helgina þannig ég var voða skynsöm og var heima á mánudaginn.. ég var ekki alveg nógu hress eftir það þannig ég ákvað að vera þriðjudaginn líka heima.. en ekki meir.. fór í skólann í gær.. var samt ekkert mikið hressari en núna er ég bara miklu verri! gat ekki klárað daginn..
Hver nennir að vera heima hjá sér með hor, hausverk, hita, verki hér og þar og drepast í hálsinum.. Ekki ég..!
Það er ekki nóg með það að maður þurfi að hanga heima, inni.. en þá getur maður lítið sem ekkert gert.. þessi hausverkur hindrar það að ég geti talað mikið í símann, verið mikið í tölvunni eða horft á TV.. svo get ég ekki einu sinni fengið frið á nóttunni til að sofa því mér er svo illt í hálsinum að það nær engri átt!
Ég einhvernvegin ekki að gera neitt annað en dragast aftur úr í skólanum.. það er ekkert spennandi, eins og það sé ekki nógu erfitt að reyna að halda í venjulega..
okey.. ég veit þetta er enginn heimsendir blablabla.. ég er bara smá pirruð akkúrat núna..
Ein mynd í lokin..
31 dagur til jóla
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.